|
Ghettogellurnar <3
Við erum 4 stelpur, 93' módel.
Við búum 2 á Breiðdalsvík, ein í Djúpavogshreppi, en ein okkar býr í Keflavík.
|
14.03.2009 14:07:51 / ghettogellur
Mér leiðist svo ég ætla að segja ykkur söguna af mjólkurskrímslinu.. 
einu sinni var riisa lítið mjólkurskrímsli sem hét sveinbjörn !hann elskaði að drekka mjólk og þess vegna ákvað hann að verða að litlu mjólkurskrímsli. Það sem að var svona skrítið við þetta skrímsli var það að hann var svartur á litinn og með grænar doppur á rassinum og var 10 cm hár ! aumingja litla mjólkurskrímslið átti enga vini því að það vill enginn vera vinur hans því að þá klárar hann alla mjólkina á heimilinu .. ekki gott ! en einn góðan veðurdag hitti hann tvær bestu, sætustu, æðislegustu og allt það góða, stelpur sem að hann hafði á ævi sinni hitt, þær hétu Kolbrún og Laura og öll þau 3 áttu það eitt sameiginlegt að elska að drekka mjólk ! Þau ákváðu einn daginn að flytja öll saman að kaupa litla mjólkurverksmiðju og drekka mjólkina alla sjálf og gefa engum með sér múhahhahaha! (nema söndru og karol) !og þau lifðu hamingjusöm til æviloka í litlu mjólkerverksmiðjunni á hæðinni endir ! :')
»
14.01.2009 18:37:41 / ghettogellur
   Jó bíatses, við ætlum að búa til stutta sögu, fyrir ykkur ástkæru lesendur.. Hefst þá sagan !
Rósmaríanna hallaði sér að steindum veggnum og sleikti þrýstnar varirnar af áfergju. Hún beið en hann kom ekki. Hann sem lét hjarta hennar slá örar í hvert sinn sem hún hugsaði um hnetusmjör. Allt í einu birtist hann eins og hendi væri veifað í kirsuberja dyrakarminum. Hann lyktaði af liljum og súrum gúrkum. Hlý haustgolan lék um ljósar fléttur bringuháranna sem gægðust undan skyrtunni. Hann missti blýantinn klaufalega í gólfið og teygði sig getnaðarlega í hann en þegar að hann ætlaði að ganga að henni flæktist hann í bringuhársfléttunum og datt kylliflatur á flísarnar. Rósmaríanna hló og hristi hárið frá kúkagrænu augasteinunum. Hún gekk hægum kynþokkafullum skrefum að honum, rétti honum hendina og bauðst til þess að hjálpa honum á fætur. Hann hló vandræðalega og sveiflaði fléttunni aftur fyrir bak, til þess að detta ekki um hana aftur. Hann fiktaði í flétunni en spurði svo hrjúfri vindblásinni röddu ,,so, where are you from, babeeee, you like me?". Hjarta byrjaði að berjast í þrýstnum barmi hennar en í stað svars byrjaði síminn hans að hringja með Silvíu Nætur hringitóni sem sagði ó mæ god mamma þín er í símanum.. Hann tók upp símtólið og svaraði ,,Jó, mó". Hún svarði honum og hann fann á sér að hún var nakin, dansandi upp á stofuborðinu. Greinilega komist í skemmda rúllu. Hann losaði sig við mömmu sína með því kasta símanum ofan í klósettskálina. Þau gengu í hægðum sínum inn í eldhús og skáru tómata með tánum. Eftir það gengu þau út og vindur lék við þumalputta hægri handar á Xhands (s.s. klaufanum). Hann tók í hönd hennar og leiddi hana að róluvellinum, þau róluðu sér þar í 52,37 mínútur og fóru svo heim til Xhands og eyddu magnþrúnginn og rafmagnaðri nóttinni saman í rökkrinu og dóu sæl í örmum vampírunnar á hæðinni, Endir.
endilega lesa og commentaa :*
kveðja KolbrúnSykurpúði og AuðurHunangsbangsi 
»
04.01.2009 21:49:16 / Auduur-
Sælir lesendur góðir! Auður hér!
Ákvað að blogga um allt sem ég gerði skemmtilegt árið 2008 
Árið byrjaði vel,
Janúar; Í janúar var ekkert í gangi nema bara skólinn og felagsmiðstöðin og svona. J Ég ákvað að taka eins og einn áfanga í framhaldsskóla og enska 103 varð fyrir valinu. Einhver vandræði voru að skipuleggja tímann hjá mér en allt fór vel að lokum og ég fékk 10 í lokaeinkunn.
Febrúar; Ógeðslegt veður pretty much allan mánuðinn! Á bollu-, sprengi-, og öskudag fórum við á keppnisdaga á Djúpavogi. Það var mjög gaman.., Vakna klukkan átta á morgnana og sitja í rútu í klukkutíma á leiðinni á Djúpavog  Ég var með fullt af finu fólki í liði og við lentum í 2. sæti J 16. feb fórum við i félagsmiðstöðinni á samaust á Norðfirði og við Ghettogellurnar mínus Daria sungum behind blue eyes með limp bizkit og gekk alveg þokkalega J Svo 19. feb fóru 5-10 bekkur á einhverja listasýningu á Seyðisfirði sem var mjög fínt.. Skólahreystið var síðan 21. og ég og Kolbrún vorum sterkar á áhorfendabekknum að hvetja Eyþór, Polly og hana Söndru ghettogellu 
 Listasýningin á Seyðisfirði. Sandra,Polly, Bergdís, Rannveig og Friðrik 
 Sigurvegarar SamAust 2008 Kjartan, Aron Daði og Arnar Jón
 Sandra Ghettogella að skríða á skólahreysti 
Mars;
Um páskana fór ég með fjölskyldunni til Ítalíu til að heimsækja hana Aðalheiði. Við vorum í 17 daga eða frá 13 - 30. mars. Vorum i Brunate og Como mestallan tímann en fórum líka til Mílanó, Feneyja og Rómar sem var mjög gaman. Vorum i Róm á páskadag og dagana þar í kring og það var hellirigning bókstaflega allan tímann!
 Í siglingu á Como vatni 
( koma fleiri myndir frá Ítalíu mjög fljótlega )
Apríl;
Sleepover með Dpv. Samræmt próf í Ensku 30. mars, einkunn 8 J
 Innpökkunarleikurinn á Sleepoverinu 
Maí; Sandra Natalía, Eyþór, Elís og Aðalsteinn fermdu sig 11. maí J Svo var árshátiðin í endaðan maí og 9. og 10. bekkur voru með leikrit sem kallaðist "Með í ferð" sem var um stórfurðulegt fólk sem lendir saman i flugvél á leiðinni til Bahamas! Okkur fannst þetta mjög gott leikrit hjá okkur en fólkinu.. Not so much J Ég lék Flugmann með athyglisbrest og litblindu sem kann ekkert að fljúga og notar bara auto-pilot takkann..
 Sætu fermingarbörnin!
 Við að kynna á árshátíðinni
 Hahahahaha!! :')
Júní;
Í byrjun júní fór ég með 9. og 10. bekk hér og á Stöðvarfirði í skólaferðalag til Danmerkur og var þar í viku. Það var mjög gaman og ég kynntist alveg fullt af nýju fóki.
Þegar ég kom heim þaðan byrjaði unglingavinnan og 18. júní byrjaði ég að vinna á N1. Svo voru ég og Sandra beðnar um að sja um þrif á tjaldstæðinu þannig að stóran part af sumrinu var ég stundum að vinna í unglingavinnunni frá 8 á morgnana til 12, þreif klósettin á tjaldstæðinu i hádeginu og var svo á N1 frá 1 til 7 um kvöldið .
 Ég og Polly sæta í Dk 
 Við í Krónborgarkastalanum(eða eitthvað svoleiðis) Alex,polly,freydís,laura og ég
Júlí; Einhverja helgina þá duttu mér, Söndru og Dariu í hug að fara að tjalda uppá klettum og við gerðum það sem var mjög fyndið :') einhvertímann í júlí fann ég mér tíma til að fara með Dariu og Pati til Keflavíkur yfir helgi og þegar við komum til baka þá bjó hún Daria hjá mér í einhverjar 2 vikur .
 Daria, ég og Pati hjá jökulsárlóni 
Ágúst; Fór með familíunni á Akureyri um verslunarmannahelgina
(myndir einhvertímann!)
September; /Skóli/Sundkennsla/félagsmiðstöð/ Október; Creative tími í skólanum  Og b.t.w. ég er ekki þunglind Sandra!! J Nóvember; Í byrjun nóvember var legókeppnin í reykjavík og við vorum auðvitað með lið! Okkur gekk mjög vel og við lentum í 5 sæti með bílinn og vorum tilnefnd fyrir rannsóknarverkefnið mitt 
 Ég , Sandra, Elís og Benni. (btw. ógeðslega heitt þarna inni!)
 Við! 
Í endaðan nóvember fór ég svo aftur til reykjarvíkur og nú með henni frænku minni Önnu Margréti. Þar fórum við í leikhús og á tónleika og svo voru flestallar jólagjafirnar keyptar í þeirri ferð. Desember;
Í byrjun desember tók ég prófin í Ensku 203 og dönsku 103 og fékk átta í lokaeinkunn i báðum fögunum. Jólamarkaðurinn var 6. og helgileikritið var 12. 18. des fór ég uppi egilsstaði og hitti pabba og Adda og svo 19. vaknaði ég eldsnemma til að fara í klippingu og svo var útskriftin hennar Aðalheiðar seinna um daginn!
 Aðalheiður kristín stúdent 
Og svo komu blessuð jólin! Eins og ég sagði fyrr þa voru þetta letijól. Horft á sjónvarpið, spiluð spurningaspil, málaðar myndir, borðað! Keypti mér eina rakettu, fór á brennuna, skaut upp og horfði á áramótaskaupið sem var ágætt um áramótin..
En er hætt að blogga í bili! Takk fyrir að lesa þetta og ég vil fá komment!! 
Kveðja AuðurHááGhettogella

»
04.01.2009 15:17:29 / Sandra
Muhahah ég er með fyrsta bloggið á þessu ári!!
»
28.12.2008 16:36:21 / Auduur-
»
11.11.2008 17:43:58 / Auduur-

Jæja. Þá er ég, Auður Hermannsdóttir, risin upp frá dauðum og er að fara að blogga afar skemmtilegt blogg handa ykkur ástkæru lesendur!Það hefur svosem ekkert sérstakt verið í gangi. Ég og Kolbrún erum bara búnar að vera á tjillinu og malla sprengjur með góðvini okkar Osama Bin Laden. Við erum búin að uppgötva rosalega uppskrift af sprengju sem gæti spregt alla Asíu og norðurskautið með!  En já.. Svo erum við búnar að vera að plana ferð út í lönd til að fara í hið árlega teboð hjá Al Kaída, Við vinkonurnar erum sko að reyna að ýta okkur uppí stjórnunarstöður þarna úti og bráðum eigum við eftir að ráða yfir heiminum! Múhahaha! :') En já, aftur til raunveruleikans.. Föstudagsmorguninn 7. nóv vaknaði ég klukkan hálf 6 til að klára að pakka niður, gera mig til og borða og svo fór ég útí skóla um hálf 7. Þar voru flestir komnir þannig að ég og Sandra fórum með Þresti á Djúpavog og pikkuðum Kolbrúni upp í leiðinni. Svo biðum við og biðum eftir rútunni en hún kom ekki. Svo þegar klukkan var átta sáum við hana loksins koma með krakkana í skólann og svo sneri hún við og keyrði til okkar en ætlaði að fara framhjá :'D En með naumindum náði bílstjórinn að snarhemla og snúa við til okkar. Svo var brunað á Höfn. Þegar við loksins komum þangað var okkur sagt að fara beint útí vél með töskurnar okkar og allt og við settum þær sjálf aftur í í flugvélina. Svo var lent í Reykjavík um hálf ellefu. Þá tókum við strætó niður í bæ og fórum í þjóðmenningarhúsið og fengum að skrifa á alvöru kálfskinn með fjaðrarpennum! Gaman, gaman.  Svo fórum við í Smáralind og versluðum smá og svo var farið á frumsýningu nýju Bond myndrinnar klukkan 4. Hún var ekki eins góð og fyrri myndin en samt alveg tímans virði.. Svo fóru ég og Kolbrún í Grafarvog og spiluðum partý og co með Berglindi og vinkonu hennar og horfðum á Jackass 2 með Rúnari og svo auðvitað beint að sofa.  Á laugardagsmorgun vöknuðum við um 7 og svo skutlaði Benni okkur uppí Öskju klukkan 8. Þar vorum við bara allan daginn að keppa og láta okkur leiðast. Ég er búin að komast að því að fáskrúðsfirðingar eru snillingar! Þeir héldu allir að Kolbrún væri í áttunda bekk :'D Og já, Svenni og Ásgeir voru alltaf að kalla mig Rebekku! En í keppninni gekk okkur nokkuð vel. Við vorum í 5 sæti í bílnum og topp 5 með rannsóknarverkfnið!  Svo eftir keppnina fóru ég, Sandra og Kolbrún uppí Grafarvog og ég fór í sturtu og svo fórum við uppí Kringlu og ætluðum í bíó en nei.. House Bunny var ekki sýnd þar þannig að við ætluðum uppí Háskólabíó en þá vildi Kolbrún endilega fara með fáskrúðsfirðingunum uppí íbúð til þeirra til að fara að hössla Ásgeir þannig að ég og Sandra ákváðum bara að fara einar og tókum leigubíl uppí háskólabíó. Þegar við komum þangað og vorum að fara að kaupa miða þá komumst við að því að myndin væri ekki sýnd þar! :'D Svo við ætluðum bara að labba heim til Söndru og vorum lagðar af stað en föttuðum að við rötuðum ekki svo við hringdum í Búa og hann kom og skutlaði okkur í Regnbogann. Myndin var sem betur fer sýnd þar þannig að við keyptum okkur miða og fórum inn. Þá datt okkur í hug að líta á klukkuna og hún var sjöö og myndin átti ekki að byrja fyrr en átta :'D Þannig að við þurftum að sitja þarna í klukkutíma + auglýsingar og bíða eftir að myndin byrjaði! Hahaha! :') Þetta var samt góð mynd þannig að þetta var þess virði  Á sunnudaginn vöknuðum ég og Kolbrún klukkan 10 og tókum strætó niður á Hlemm og svo annan uppí Kringlu. Þangað komu svo allir og við fórum í keilu. Geðveikt gaman  Svo fórum við í smáralind í smá tíma og versluðum pínu og svo fóru einhverjir í lazertag. Eftir það fór ég síðan til Búa og við horfðum á Deja Vu og svo fór ég uppí Grafarvog. Mánudagsmorguninn vöknuðum við svo klukkan 6 og fórum svo útá flugvöll. Svo var sofið eða tjillað mest alla leiðina til Breiðdalsvíkur og svo var ekkert mikið gert þann daginn! En er að hugsa um að hafa þetta ekki lengra!! Ef þið hafið lesið þetta allt þá takk kærlega, ef ekki þá skil ég ykkur alveg. En í stuttu máli; Góð helgi, kynntist nokkru nýju fólki, fór í keilu í fyrsta skipti, og margt margt fleira.. Takk fyrir helgina krakkar mínir! ;**  KærKveðja Auður Ghettogella!
P.s. Koma myndir mjög fljótlega.. P.p.s Superhuman með Chris Brown er gott lag! og b.t.w. þá eru 90210 shit góðir þættir.. allavega að mínu mati þannig að google it!  Mig langar í comment! 
»
11.10.2008 22:00:05 / dariais122
Helló Hvað segir þið gott ? Í lifinu minu er svo margt buin að breitast þegar ég er flutt til Keflaviikur.  ég er komin i Heiðarskóla og fan marga nýja vini, nuna er okkar 6 báðar strákar og stelpur (polverjar)... Patrycja:  Magda:  Sylwia:  Patrycja:  Daria (eg):  Og Sebastian Magda og eg:  Þau eru svo sæt er það ekki ? Í skólanum hjá mér er einn sætur strákur sem heitir Mikael og er frá USA.  Það er sleepPower hjá mér i þessa kvöld,, við erum 3: Magda, Patrycja og ég þess vegna þarf ég að fara nuna , heirumst bráðum,,..,, drdyk for pati sys.
»
09.10.2008 19:45:54 / Auduur-
»
26.09.2008 09:26:18 / ghettogellur
Halló ! hér sitjum við 3 sposkar á svip og sumar eru að reyna að læra í sögu. en ekki ég samt  Óli var að koma inn og hættir ekki að tala um family guy  Jæja, en allavega ég ætla að reyna að blogga svolítið um lífið og tilveruna hér á Breiðdalsvík og hver veit nema að ég nenni að slúðra á eftir (lofa engu). jább, og svo vorum við að búa til síðu fyrir legodæmið, (y) www.helium08.blogcentral.is fyrir þá sem að hafa ekkert betra við tímann sinn að gera  En já hann Friðrik litli bróðir minn átti afmæli um daginn (tuttugasta og fjórða) og finnst mér hann eiga rétt á afmælissöng Hann á afmæli í dag Hann á afmæli í dag Hann á afmæli í dag, hann á afmæli hann Friðriiiiiik Hann á afmæli í dag Hann Guðmar frændi minn átti líka afmæli um daginn (tuttugasta og annan) og mér finnst hann svo mikið æði að ég ætla líka að syngja fyrir hann ;* Hann á afmæli í dag Hann á afmæli í dag Hann á afmæli í dag, hann á afmæli hann Guuuuðmaaaaaar, Hann á afmæli í dag  Þá er það búið og ininilega til hamingju strákar með það að verða orðnir 13 ára En já, ætli maður verði ekki að drífa sig í tíma ha ?  En heyrumst síðar -kolbrúnrós
»
05.09.2008 17:41:32 / Sandra
Hjjæææjjjj!!
núna er ég búin að vera með á þessari síðu í 1 ár til hamingju ég:þ
-Sandra
»
04.09.2008 11:42:17 / Auduur-
»
20.08.2008 23:51:04 / Sandra
»
01.08.2008 10:58:12 / ghettogellur
Hæææj! Frönsku daga helgin Föstudagurinn; Vaknaði kl half 6 !!!! til þess að verða komin tímanlega uppí Egilsstaði því að pabbi og mamma áttu tíma í klippingu, og síðan kl 2 þurfti bílinn að fara í smurningu og hann var bara óvenju lengi. Síðan ar brunað beint á fáskrúðsfjörð og við fórum aðeins í heimsókn til Gunnars afa míns ;** <3 sem var bara nokkuð hress miðað við vanalega og síðan kíktum við aðeins á Siggu Kára,** sem að mundi ekkert hver ég var.. En já svo fórum við að tjalda tjaldinu en þegar að við áttum að fara að pumpa í dýnuna hringdi magga og var að flýta sér með sunn niður á bryggju í dorgveiðikeppnina. Og við systkinin fórum bara með þeim og við magga gengum fram og aftur um bryggjuna á meðan að hinir voru að veiða.. Síðan um kvöldið fórum við í heyvagnaakstur með litlu systkinin okkar rusa stuð það sko ! síðan kom hún Jóa á stf og ég var meira og minna með henni allt kvöldið, en síðan fór ég að hjálpa Sunnu að selja eitthvað dót... Síðan hittum við Freyju Lind og Guðmar og fl. 95’ módel og þau voru að drekka tópas ! og Freyja og Guðmar voru bæði nokkuð full.. Vitleysingarnir en Guðmar er búin að lofa mér að gera þetta ekki aftur bráðlega :* Flugeldasýningin var samt frekar glötuð, því að rakinn í loftinu eyðilagði víst e’ð ... Síðan var Dalton ball fyrir 16 ára og eldri og ég hefði léttilega getað komist inn strákur sem að ég þekki (Ásgeir) var víst með lykla að Skrúð en hann sagði mér það aðeins of seint ;p og auk þess var hann svo fullur að hann mundi örugglega ekki hvar hann hafði sett lykilinn :’) Laugardagurinn: Vaknaði um 10 leytið og við vorum bara eitthvað að dúlla okkur og gera grín að vini frænda okkar sem að svaf í sófaum inni hjá Lillu, stórfurðulegur náungi :’) Fórum síðan á Minningarathöfn... og síðan fórum við í einhverja skrúðgöngu og ég, Friðrik, Bergþór og Svanur stukkum uppá slökkviliðsbílin sem að leiddi skrúðgönguna og ég sá þurfti að setja undir brunastiganum Síðan var hátið í miðbænum, og Magga, Guðmundur og Brynja var einhverjar styttur og í hvert skipti sem að einhver kastaði pening í pottinn hjá þeim þá hreyfðu þau sig. Síðan um hálf 4 leytið þurftum við Magga að vinna í einhverjum hoppukastala of lengi ! í 1 og hálfan klukkutíma :/ en já, strákarnir voru aðeins að pirra okkur... Og þegar að ég var að fara úr hoppukastalanum um 5 leytið þegar að allt var búið giskiði hvern ég hitti .. ! Engan annan en Steina Stöðfirðing  En því miður gat ég lítið spjallað við hann því að litla systir mín var grenjandi heima hjá Lillu því að henni leiddist eitthvað.. Um kvöldið átti svo að verða útitónleikar á sviðinu en það varð ekkert úr því og enginn veit afhverju :/ En síðan var dansleikur með hljómsveitinni Von – 18 ára + og við Magga þurftum að passa Guðjon, Anton unnar og Brynjar Heimi og Magga gat ekki svæft Anton því að hann var svo hræddur við hundinn !?!? en þegar að ég lagðist hjá honum steinssofmaði hann. Síðan um 4 leytið komu Heiða (fósturmamma Möggu) og Steini (pabbi Möggu) heim og Steini var bliiindfullur :’) Það var lítið sem að hann sagði en það sem að hann sagði var ,, Þið trúið ekki hvað ég sá, dverg og svertingja...... í sömu ferðinni...... en samt ekki sami maðurinn” Og svo fór hann að syngja ,,Til bahama eyyyyyja, til bahama eyyyja :’)” Og svo spurði hann okkur hvort að við höfðum verið að horfa á mynd... og við bara já.. og þá sagði hann ..Svekkjandi ?!?!?!? :’) Og þegar að við svöruðum einhverjum spurningum sem að hann alltaf annað hvort ,,svekkjandi” eða ,,já, sæll” :’) Fórum að sofa um ½ 5 leytið um morgunninn  Sunnudagur; Fórum um 12 leytið í miðbæinn með Katrínu og Ólöf Rún og við fórum á leikritið Soffía Mús á tímaflakki.. jeijj !! ;p Og síðan fórum við að labba um allt og tala við fuullt af fólki.. og e’ð.. stríða Guðmari og ég veit ekki hvað og hvað... Siðan fórum við heim og við ætluðum að setja blóm á leiðið hennar Öllu ömmu og við gerðum það og svo fórum við aðeins á leiðið hennar Bínu (Systir Öllu ömmu, mömmu Jónu Særúnar) og þá voru 2 sígarettustubbar á leiðinni og mamma varð svolítið pirruð, hver gerir svoleiðis eiginlega !? En já svo var bara farið heim ...
Takk fyrir helgina allir :**<3
- Kolbrún Rós P.s. gaman að hitta ykkur i gær stelpur mínar :**<3
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
Heimsóknir
Í dag: 4 Alls: 32037
Talning
Fyrir 1156 dögum
Jólin:D:P;**
|